Byggðarsafnssýningin Lífið í Selvoginum

Ása Bjarnadóttir og Halldóra Björk Guðmundsdóttir fóru af stað fyrr í vetur með þá hugmynd að setja upp sýningu undir stiganum á bókasafninu í Þorlákshöfn þar sem lífið í Selvoginum yrði viðfangsefnið.

Þær söfnuðu að sér munum, viðtölum og myndum, ásamt þeim hlutum sem fundust uppá háalofti á B götu 10.

Á fimmtudaginn 10. ágúst var sýningin opnuð fyrir gestum með pompi og prakt og má segja að sjaldan eða aldrei hefur aðsóknin verið eins mikil.

Sýningin verður í gangi út september og er hún opin alla virka daga frá 12.30 – 17.30.