Sigríður Thorlacius og Valdimar með jólatónleika í Versölum

Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson verða með einstaka og hugljúfa jólatónleika í Versölum í Þorlákshöfn 3. desember næstkomandi.

Sigríður Thorlacius er landsþekkt söngkona. Hún er þekkt fyrir að vera í hljómsveitinni Hjaltalín, ásamt því að vera með vinsæla jólatónleika með Sigurði Guðmundssyni.

Valdimar Guðmundsson er í hljómsveitinni Valdimar. Hann er þekktur fyrir hugljúfa og fallega rödd sem lætur manni hreinlega líða vel að hlusta á.

Með þau saman að flytja okkur hugljúf jólalög verður enginn svikinn og þetta er viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Miðasalan fer fram á midi.is en hægt er að kaupa miða með því að smella hér.