Elliði auglýsir til sölu búseturétt á Sunnubraut

Húsnæðissamvinnufélagið Elliði auglýsir til sölu búseturétt í parhúsi sem staðsett er í byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Sunnubraut 2 í Þorlákshöfn
Til sölu er búseturéttur í þriggja herbergja íbúð í parhúsi. Í heildina er eignin 122,5 fm. og þar af bílskúr 28,6 fm. Húsið var byggt árið 2004 og er staðsett í rólegum og notalegum byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Búseturétturinn kostar 3.000.000 kr. og búsetugjald 145.000 kr. á mánuði. Til viðbótar þarf að greiða rafmagn, hita og fasteignagjöld. Bæði félagsmenn og utanfélagsmenn geta keypt búseturéttinn en aldursskilyrði eru 60 ára og eldri.

Við úthlutun verður horft til þess hve lengi einstaklingar sem sækja um hafa verið í félaginu. Ef enginn félagsmaður sækir um verður búseturétturinn seldur til utanfélagsmanna. Íbúðin er laus 1. Febrúar 2019 og skulu umsóknir berast félaginu fyrir 3. desember nk.

Þeir sem hafa áhuga á að kaupa búseturéttinn skulu senda inn umsóknir á Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarberg 1, 815 Þorlákshöfn eða á netfangið olfus@olfus.is. Nánari upplýsingar veitir Valur Rafn Halldórsson í síma 868-1895 eða valurrafnh@gmail.com.