Jólagleði Foreldrafélags Grunnskóla Þorlákshafnar

Jólaföndur verður haldið þriðjudaginn 4. desember frá kl. 17-19 í stóra turninum í grunnskólanum. Í salnum verður jólatónlist ásamt því að 10. bekkur mun vera með sjoppu, heitt kakó og vöfflur með rjóma.

Bergþóra í Bjarkarblóm verður á staðnum með Hýasintur og fleira skemmtilegt.

Eigum góða stund saman með börnum okkar að föndra, mála piparkökur ásamt því að njóta tónlistar og matar.

Heyrst hefur að einhverjir rauðklæddir gleðigjafar muni láta sjá sig til að dansa með börnunum.

Allir bæjarbúar velkomnir í jólagleðina og vonandi sjáum við sem flesta.

Kveðja,
Foreldrafélagið