Boðið í veiði í Hlíðarvatni

Mynd: veida.is

Stangaveiðifélagið Árblik, Ármenn, Stangaveiðifélag Hafnafjarðar, Stangaveiðifélag Selfoss og Stangveiðifélagið Stakkavík bjóða gestum að koma og veiða án endurgjalds í Hlíðarvatni í Selvogi sunnudaginn 9. júní næstkomandi

Fulltrúar frá félögunum verða á staðnum og munu leiðbeina gestum um agn, veiðistaði og aðferðir. Einnig verður að fá á staðnum ýmsar upplýsingar um vatnið og veiðina í því.

Gestum er frjálst að koma árla morguns á sunnudeginum og veiða til kl. 17:00 um kvöldið.

Leyfilegt agn er fluga og spónn. Einungis er veitt frá landi. Gestir eru vinsamlegast beðnir að skrá aflann hjá einhverju félaganna. Skrá þarf tegund, þyngd, lengd og agn. Gestum er bent á að lausaganga hunda við vatnið er óheimil vegna hættu fyrir sauðfé. Þeir sem sótt hafa vatnið að undanförnu hafa veitt oft ágætlega þannig að vel gæti fiskast, enda er spáin góð.