Þrjár konur og þrír karlar sóttu um stöðu sóknarprests

Sex sóttu um embætti sóknarprests í Þorlákshafnarprestakalli en umsóknarfrestur rann út á miðnætti 9. desember.

Biskup Íslands mun veita starfið frá og með 1. febrúar 2020 en eftirfarandi einstaklingar sóttu um starfið:

  • Erna Kristín Stefánsdóttir, mag. theol.
  • Sr. Gunnar Jóhannesson
  • Sr. Haraldur Örn Gunnarsson
  • Sr. Jónína Ólafsdóttir
  • Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir
  • Ægir Örn Sveinsson, mag. theol.

Í Þorlákshafnarprestakalli, eru tvær sóknir, Þorláks- og Hjallasókn í Ölfusi og Strandarsókn, með tæplega 1.800 íbúa og þrjár kirkjur. Þorlákskirkja í Þorlákshöfn, Hjallakirkja að Hjalla í Ölfusi og Strandarkirkja að Strönd í Selvogi.