Leikskólinn Bergheimar auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 50% stöðu eftir hádegi og einnig er auglýst eftir 100% afleysingu í óákveðin tíma. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfsins er skólanum heimilt að ráða annan í stöðuna.
Bæði kyn eru hvött til að sækja um og eru laun greidd samkvæmt kjarasamningi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 14. ágúst 2013.
Menntunar- og hæfniskröfur eru svo hljóðandi
- Leikskólakennaramenntun, önnur háskólamenntun eða reynsla á sviði uppeldis og kennslu
- Færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi
- Jákvæði og áhugasemi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sveitarfélagsins í Ráðhúsinu og skal skilað þangað eigi síðar en 12.júlí 2013.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum og í síma 4833808 á vinnutíma. Einnig er hægt er að senda netpóst á asgerdur@olfus.is og dagny@olfus.is.