Endurvinnslutunnur fyrir plast verða keyrðar út í dag og næstu daga

Í dag munu starfsmenn þjónustumiðstöðvarinnar byrja að keyra út endurvinnslutunnur fyrir plast.

Inni í tunnunni er lítil tunna sem er fyrir lífrænan úrgang. Sú tunna á að fara ofan í tunnuna fyrir almennt sorp. Einnig er græn fata og pokarúllur sem fara inn í hús til að safna saman lífræna úrganginum.

Hægt er að hafa samband við þjónustumiðstöðina ef það eru einhverjar spurningar s. 483 3803.