Íbúafjöldi í Sveitarfélaginu Ölfus er sá sami í lok þriðja ársfjórðungs og hann var í upphafi árs en heildarfjöldi íbúa er 1.900. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar sem birtar voru í gær.
Á sama tíma í fyrra voru íbúar sveitarfélagsins 1.930 talsins en fækkaði síðan um 30 í lok síðasta árs. Íbúafjöldinn hefur staðið í stað síðan.
Þess skal þó geta að allar tölur Hagstofunnar eru námundaðar að næsta tug og sýna þar af leiðandi ekki nákvæman fjölda.