Fjórir hlutu styrk úr menningarsjóði Ölfuss

makalaus_sambud01Menningarnefnd hefur úthlutað styrkjum úr Lista- og menningarsjóði Ölfuss. Þetta kemur fram á heimasíðu Ölfuss. Þetta er í níunda skipti sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum og voru 275.000 krónur til úthlutunar.  Alls bárust fimm umsóknir, samanlagt að upphæð 1.168.000 krónur.

Ákveðið var að styrkja fjögur verkefni en stærsti styrkurinn eða 150.000 krónur, fór til Leikfélags Ölfuss vegna sýningarinnar Makalaus sambúð sem nú er á fjölunum. Þá var ákveðið að styrkja Félag eldri borgara um 60.000 krónur vegna ýmissa viðburða á afmælisári félagsins, en það heldur upp á 20 ára afmæli sitt árið 2014.  Róbert Karl Ingimundarson fékk 40.000 króna styrk vegna ljósmyndasýningar sem nú stendur yfir í Gallerí undir stiganum, en menningarnefnd fær leyfi til að nota myndir frá Róberti í kynningarefni fyrir Sveitarfélagið.  Að lokum fékk Kvenfélagið Bergþóra 25.000 króna styrk til að efna til jólatrésskemmtunar í desember.