Í kvöld fer fram 8 liða úrslit bikarkeppninnar í körfu þegar Haukar heimsækja Þórsara í Icelandic Glacial höllinni.
Haukar fóru illa með Þór í deildinni fyrir jól og ætla heimamenn sér væntanlega ekki að endurtaka þann leik.
Það lið sem fer með sigur í kvöld er komið í undanúrslit bikarsins. Grindavík og Tindastóll eru nú þegar komin í undanúrslit og á morgun kemur í ljós hvort ÍR eða Keflavík B fari áfram.
Það verður því mikið í húfi í höfninni í kvöld og skiptir stuðningurinn miklu máli en leikurinn hefst klukkan 19:15.