Þórsarar á Reykjavíkurleikum – sýnt beint á RÚV

styrmir_featuredÞau Eva Lind Elíasdóttir og Styrmir Dan Steinunnarson úr Þór í Þorlákshöfn fengu boð um að taka þátt í frjálsíþróttakeppni Reykjavíkurleikanna sem fram fer á morgun, sunnudag. Eva Lind keppir í 60m grindahlaupi og kúluvarpi, en hún varð einmitt Íslandsmeistari í þeirri grein í sínum aldursflokki , 18-19 ára, um síðustu helgi. Styrmir Dan keppir í hástökki en hann setti Íslandsmet í þeirri grein í flokki 14 ára í desember sl. stökk 1,90 m.

axel_ithrottamadurolfuss2013Einnig keppa á Reykjavíkurleikunum tveir Þórsarar í badminton. Það eru þau Axel Örn Sæmundsson og Þórey Katla Brynjarsdóttir en þau keppa í dag.

Athygli skal vakin á því að sýnt er beint frá frjálsíþróttakeppni Reykjavíkurleikanna á RÚV á morgun.