Tæplega 200 viðburðir á Leyndardómum Suðurlands

hendur_i_hofn01
Hendur í höfn mun taka þátt í Leyndardómum Suðurlands ásamt mörgum öðrum.

Föstudaginn 28. mars klukkan 14:00 hefst kynningarátakið Leyndardómar Suðurlands. Þá munu ráðherrar Suðurkjördæmis, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, ásamt Gunnari Þorgeirssyni, formanni Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga setja hátíðina við Litlu Kaffistofuna og opna þar með 10 daga hátíð á Suðurlandi.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga standa að átakinu en samtökin bjóða frítt í Strætó frá Reykjavík um allt Suðurland. Tæplega 200 viðburðir eru skráðir til leiks á leyndardómunum og fór þátttakan langt fram úr björtustu vonum skipuleggjenda.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um viðburði Leyndardóma Suðurlands inni á nýrri vefsíðu www.sudurlands.is.