Brotist var inn í veitingastaðinn Hafið bláa við Óseyrarbrú snemma í morgun og þaðan stolið fartölvum og áfengi.
Innbrotsþjófurinn braut gler til að komast inn á staðinn eftir að hafa reynt að brjóta upp hurðina án árangurs. Hurðin skemmdist þó við atganginn.
Þjófurinn reif niður öryggismyndavél fyrir utan staðinn en náðist þó á mynd inni á veitingastaðnum en myndina af manninum má sjá hér til hliðar.
Þeir sem þekkja til mannsins geta haft samband við lögregluna á Selfossi í síma 480-1010 eða Hafið bláa í síma 483-1000.