Leikfélag Ölfuss skiptir um leikverk vegna karlaskorts

leikfelag01Leikfélag Ölfuss hefur hafið æfingar á verkinu Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason.

Upphaflega var stefnt á að setja upp nýtt íslenskt leikrit, Einn rjúkandi kaffibolla, eftir heimamanninn Aðalstein Jóhannsson en því miður tókst ekki að fá nógu marga karlmenn til að leika í þetta sinn en karlmannsleysi hefur hrjáð Ölfusinga um nokkurt skeið. Því var brugðið á það ráð að velja annað verk.

Enginn með Steindóri er drepfyndið gamanleikrit sem kemur sífellt á óvart. Sagan gerist á heimili bankastjóra nokkurs og hans listelskandi ektakvinnu en þau hafa boðið foreldrum verðandi tengdasonar síns í mat. Þegar fólkið fer að kynnast tekur leikurinn að æsast og ekki lagast það þegar bróðir verðandi tengdasonarins mætir óboðinn í partíið. Sprenghlægilegar persónur og óútreiknanlegur söguþráður. Frumsýnt verður í lok október.

Leikfélag Ölfuss er á Facebook og ef þú hefur ekki gerst vinur þess nú þegar er ekkert sem ætti að stoppa þig í því. Félagið hefur einnig nýlega stofnað bloggsíðu. Slóðin er www.leikfjelag.wordpress.com.

Magnþóra Kristjánsdóttir, formaður LÖ