Í dag, fyrsta sunnudag í aðventu, verður haldin aðventuhátíð í Þorlákskirkju.
Nær allir starfandi kórar í sókninni koma fram á tónleikunum ásamt skólalúðrasveit Þorlákshafnar.
Væntanleg fermingarbörn lesa lestra og sóknarprestur flytur hugleiðingu.
Tónleikarnir hefjast klukkan 15:30 og eru allir velkomnir.