Nýárstónleikar Lúðrasveitar Þorlákshafnar á laugardaginn

ludrasveit_harpa2014-21Lúðrasveit Þorlákshafnar efnir til stórviðburðar í Þorlákshöfn næstkomandi laugardag, 17. janúar, þegar sveitin heldur sína rómuðu nýárstónleika.

Á efnisskránni verða valsar, polkar og marsar, galaklæddir lúðralúðar, grátandi fiðla, dúnmjúkir dansarar, tröll, dvergar, knöll, klarinettukiðlingurinn knái og tælandi trompetkvartett, Snæfríður Íslandssól og Þyrnirós svo eitthvað sé nefnt.

Fastlega má gera ráð fyrir stórskemmtilegum tónleikum eins og alltaf þegar Lúðrasveit Þorlákshafnar kemur saman.

Forsala miða fer fram á Bæjarbókasafni Ölfuss en einnig er hægt að kaupa miða við innganginn. Tónleikarnir fara fram í Versölum og hefjast þeir klukkan 17:00.