Sjáðu spurningarnar: Vilja íbúar Ölfuss sameiningu?

thorlakshofn01Á fundi bæjarstjórnar Ölfuss síðastliðinn fimmtudag var rætt um fyrirkomulag og kynningu á rafrænu íbúakosningunni í sveitarfélaginu sem haldin verður dagana 17.-26. mars næstkomandi.

Í íbúakosningunni verður kannaður vilji íbúa sveitarfélagsins til sameiningar við önnur sveitarfélög auk þess sem spurt verður um heppilega tímasetningu fyrir bæjarhátíðina Hafnardaga sem undanfarin ár hefur verið haldin um sjómannadagshelgina.

Eftirfarandi eru þær spurningar sem lagðar verða fram í rafrænu íbúakosningunni dagana 17.-26. mars:

Spurning 1
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss ræði við annað sveitarfélag eða sveitarfélög um sameiningu?

  • Hlynnt(ur) viðræðum
  • Andvíg(ur) viðræðum

Spurning 2
Ef meirihluti íbúa er hlynntur viðræðum, við hvaða sveitarfélag ætti Ölfus helst að ræða? (Sé fyllt í valkosti má velja eitt eða fleiri sveitarfélög)

  • Árborg
  • Hveragerði
  • Grindavík
  • Annað sveitarfélag

Spurning 3
Hvaða tímasetningu telur þú heppilegasta/besta fyrir Hafnardaga?

  • Sjómannadagshelgi
  • Júní eftir sjómannadag
  • Júlí
  • Verslunarmannahelgi
  • Ágúst eftir verslunarmannahelgi
  • September til maí

Rafræna íbúakosningin hefur verið kynnt lögum samkvæmt með opinberum hætti á heimasíðu sveitarfélagsins og mun verða kynnt með ítarlegri hætti á næstu dögum.

Til að koma í veg fyrir misskilning varðandi spurningu 1 þá eru íbúar ekki að kjósa um sameiningu sveitarfélaga heldur er bæjarstjórn að leita umboðs íbúa til mögulegra sameiningarviðræðna við önnur sveitarfélög en þetta kemur fram í bókun bæjarstjórnar. Ef bæjarstjórn fær umboð til slíkra viðræðna gætu þær viðræður leitt til kosninga um sameiningu Sveitarfélagsins Ölfuss við annað eða önnur sveitarfélög þar sem fram færu ítarlegar kynningar á áhrifum slíkrar sameiningar, það sem í daglegu tali er nefnt „kostir og gallar“.

Bæjarstjórn Ölfuss hvetur íbúa sveitarfélagsins til þátttöku.