Guðrún Jóhannsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Ráðningin var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gær en sjö einstaklingar sóttu um stöðuna.
Guðrún kemur frá Eyrarbakka og starfar í dag sem deildarstjóri yngri deildar og forstöðumaður skólavistunar í Vallaskóla á Selfossi.
Hún tekur til starfa 1. ágúst en þá lætur Halldór Sigurðsson af störfum eftir 27 ára starf sem skólastjóri Grunnskólans í Þorlákshöfn.