Tónar og trix fóru á kostum fyrir fullum sal á seinni útgáfutónleikum sínum sem fram fóru í Gamla bíói í Reykjavík í kvöld.
Mikil og góð stemning var í glæsilegu og nýuppgerðu Gamla bíói og skemmtu áhorfendur sér konunglega.
Blaðamaður Hafnarfrétta tók eftir því að margir Þorlákshafnarbúar lögðu leið sína í höfuðborgina til þess að hlýða á þessa snillinga.
Meðfylgjandi myndband er frá tónleikunum í kvöld þar sem stórsöngkonan Kristjana Stefánsdóttir fór á kostum með Tónum og trix. Lagið heitir Vinur ljúfi og er lag og texti eftir Tóna trix.
Einnig eru nokkrar myndir frá tónleikunum hér að neðan.