Allt stefnir í að veðrið á morgun verði sannkallað 17. júní veður og því hefur verið ákveðið að færa hátíðardagskrá þjóðhátíðardagsins inn í íþróttamiðstöð.
Hér að neðan má sjá 17. júní dagskrána í Þorlákshöfn
9:00 Íslenski fáninn dreginn að húni.
10:30 Skrúðgarðurinn: Leikir og fjör í umsjón fimleikastelpnanna í T1. Allir aldurshópar velkomnir!
13:00 Skrúðganga frá grunnskólanum. Lúðrasveit Þorlákshafnar leiðir gönguna undir stjórn Róberts Darling.
13:30 Hátíðardagskrá í íþóttamiðstöðinni
- Lúðrasveit Þorlákshafnar
- Ávarp bæjarfulltrúa
- Hátíðarræða: Aðalsteinn Jóhannsson
- Ávarp fjallkonu
- Gói skemmtir ungum sem öldnum
- Berglind María syngur nokkur lög
- Danshópurinn Ground Zero sýnir dans
14:30-16:30 Kaffisala í Versölum
17:00 Fimleikasprell í íþróttamiðstöð, fjör fyrir alla í umsjón fimleikastelpnanna í T1