Aukin jarðskjálftavirkni allt austur í Ölfus

thorlakshofn01Undanfarnar vikur hefur orðið nokkur aukning á jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaganum og nágrenni hans. Þetta kemur fram hjá Lögreglunni á Suðurlandi.

Greining á smáskjálftum bendir til þess að slíkur óstöðugleiki geti verið til staðar allt frá Kleifarvatni og austur í Ölfus. Mælingar á jarðskorpuhreyfingum síðustu árin gefa einnig vísbendingar um að á þessu svæði sé mögulega talsverð spenna sem getur losnað út í stærri skjálftum.

Sögulegar upplýsingar benda til að jarðskjálftar á þessu svæði geti orðið allt að 6,5 að stærð. Meðal annars urðu skjálftar um og yfir 6 að stærð á Bláfjallasvæðinu árin 1929 og 1968. Þeir skjálftar ollu ekki miklu tjóni á höfuðborgarsvæðinu en þó ber að gæta að því að byggð hefur færst miklu nær þessu skjálftasvæði á síðustu árum.

Búast má við því að áhrif skjálfta af þessari stærðargráðu í nálægum byggðum meðal annars Þorlákshöfn og í Ölfusinu sjálfu og verði þannig að allir finni jarðskjálftann, margir verði skelkaðir og jafnvel hlaupi út úr húsum. Þung húsgögn gætu hreyfst og múrhúðun sprungið af veggjum á stöku stað. Annars er ekki að búast við miklu tjóni á vel byggðum húsum.

Rétt er að minna íbúa á jarðskjálftasvæðum reglulega á atriði sem hafa ber í huga og hvernig hægt er að minnka líkur á meiðslum eða tjóni á eignum þegar jarðskjálftar verða. Skoða þarf hvar á heimili eða vinnustað hættur geta leynst ef jarðskjálfti verður. Rétt er að benda á að veruleg hætta getur verið á hruni í hellum nálægt upptökum stórra jarðskjálfta auk þess sem grjót getur hrunið úr hlíðum fjalla.

Leiðbeiningar um hvernig megi draga verulega úr hættu af völdum jarðskálfta má finna á vefnum www.almannavarnir.is.

Myndband um sama efni frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg er á Youtube.