Hvergerðingar vilja samstarf vegna göngubrúar og breytt sveitarfélagamörk

hveragerdi01Á vef Hveragerðisbæjar kemur fram að bæjarráð Hveragerðis hefur óskað eftir samstarfi við Sveitarfélagið Ölfus um hönnun og fjármögnun nýrrar brúar yfir Hengladalaá (við upphaf gönguleiðar inn Reykjadal) þannig að gera megi ráð fyrir framkvæmdinni við gerð fjárhagsáætlunar 2016.

Fjöldi ferðamanna sem sækir Reykjadalinn heim hefur aukist gríðarlega í sumar. Sem dæmi má nefna að kl. 14:30 laugardaginn 1. ágúst voru 150 bílar staddir á bílastæðinu við Dalakaffi og 2 stórar rútur.

Sú brú sem er til staðan í dag yfir Hengladalaá var lögð þar til bráðabirgða, hún er hallandi og skökk, það vantar í hana gólfborð og á henni er ekkert handrið. Bæjarráð Hveragerðisbæjar telur brýnt að þegar í stað verði hugað að nýrri brú sem gæti með góðri hönnun orðið að skemmtilegu upphafi þessarar vinsælu gönguleiðar.

Til viðbótar við að óska eftir samstarfi vegna brúarinnar þá samþykkti bæjarráð Hveragerðisbæjar einnig að óska eftir því að gerð verði lagfæring á sveitarfélagamörkum Hveragerðis og Sveitarfélagsins Ölfuss með það að markmiði að spildan ofan Varmár og að fjallsrótum tilheyri Hveragerðisbæ.