Hið árlega Minningarmót um Gunnar Jón Guðmundsson fór fram á Þorláksvelli í dag. Fjölmargir spilarar úr hinum ýmsu klúbbum tóku þátt að þessu sinni en mótið var mjög vel heppnað og endaði með grillveislu í lokin.
Þó nokkuð mikil rigning var á meðan á mótinu stóð en hún kom ekki að sök þar sem vindur var enginn og hlýtt í veðri. Í lokin stytti upp og mótsgestir gæddu sér á dýrindis hamborgurum og pulsum í sólinni.
Verðlaun voru veitt fyrir efstu þrjú sætin, fimm nándarverðlaun og einnig fyrir lengsta teighöggið. Í lokin voru síðan veittir glæsilegir vinningar þar sem allir þáttakendur áttu möguleika á vinning.
Neðst í fréttinni má sjá nokkrar myndir frá mótinu í dag.
Úrslit
- Ástmundur Sigmarsson og Vilhjálmur Andri Vilhjálmsson á 63 höggum netto
- Gunnar Már Gunnarsson og Guðni Sigurbjarnarson á 64 höggum nettó
- Jóhann Peter Andersen og Erla Adólfsdóttir á 64 höggum nettó
Næst holu voru eftirfarandi:
- Kjartan Ágúst Valsson 1,39 m frá holu – 2. braut
- Gunnar Benediktsson 2,06 m – 7. braut
- Guðrún Brá Björgvinsdóttir 3,82 m. – 10. braut
- Erla Adólfsdóttir 1,50 m. – 12. braut
- Ingvar Jónsson 3,40 m – 15. braut
Lengsta teighögg á 17. braut:
- Ólafur Ingi Guðmundsson