Bæjarráð Ölfuss hefur samþykkt að gera samning við Tónsmiðju Suðurlands um tónlistarkennslu fyrir íbúa sveitarfélagsins. Um er að ræða reynslusamning næsta skólaár fyrir allt að 5 nemendur.
Tónsmiðja Suðurlands er einkarekinn skóli sem býður upp á fjölbreytt tónlistarnám og er skólinn í samstarfi við flest sveitarfélög á Suðurlandi.
Eigandi og annar skólastjóri Tónsmiðjunnar er Stefán Þorleifsson en hann bjó í Þorlákshöfn til margra ára. Hann kenndi um tíma í höfninni og stjórnaði kórum og lúðrasveitum.