Leikmaður Hattar rekinn fyrir kynþáttafordóma

IMG_20150808_162858Leikmaður Hattar, Georgi Stefanov, hefur verið rekinn frá félaginu eftir niðrandi ummæli í garð Brenton Muhammad, markmanns Ægis. Það er Austurfrétt sem greinir frá.

Eins og greint var frá um helgina þá kallaði leikmaður Hattar markmann Ægis apa í tvígang í viðureign liðanna í 2. deildinni á laugardaginn.

Fram kemur í yfirlýsingu frá stjórn Hattar rekstrarfélags að Stefanov viðurkenni brot sín og vilji koma á framfæri afsökunarbeiðni til Brenton.

Yfirlýsingu félagsins má lesa hér að neðan.

Stjórn Hattar rekstrarfélags ehf sem fer með rekstur meistararflokka félagsins í knattspyrnu harmar mjög atvik sem átti sér stað í leik Hattar og Ægis s.l. laugardag þar sem Georgi Stefanov leikmaður Hattar veittist að Brenton Muhammad leikmanni Ægis með niðrandi ummælum. Ummæli sem verða ekki skilin öðruvísi en kynþáttafordómar í garð Brenton.

Stjórnarmenn félagsins hafa rætt málið við viðkomandi leikmann sem hefur gengist við broti sínu. Leikmaðurinn er miður sín vegna framgöngu sinnar og veit að hann hefur engar málsbætur. Hann vill koma á framfæri afsökunarbeiðini sinni til Brenton.
Stjórn Hattar rekstrarfélags ehf biður Brenton Muhammad, leikmenn Ægis og aðstandendur félagsins innilega afsökunar á umræddu atviki. Einnig vil stjórnin biðja stuðningsmenn Hattar og stuðningsaðila afsökunar.

Frá því að Georgi Stefanov gekk til liðs við Hött hefur hann staðið sig mjög vel innan vallar sem utan og engan skugga borið á hans framkomu. Hann er mjög miður sín fyrir framferði sínu gagnvart Brenton. Það verður hins vegar ekki horft framhjá alvarleika brotsins og því hefur stjórn Hattar rekstrarfélags ehf ákveðið að Georgi Stefanov spili ekki fleiri leiki með félaginu.