Í kvöld fer fram annar leikur Þórsara í Lengjubikarnum í körfubolta þegar Njarðvík mætir í heimsókn í Icelandic Glacial höllina.
Einar Árni þjálfari Þórs mun þarna hitta fyrir sína gömlu félaga en hann þjálfaði Njarðvík til margra ára.
Leikurinn hefst að venju klukkan 19:15 og aðgangseyrir er 500 kr. fyrir 16 ára og eldri.