Eins og við greindum frá í síðustu viku þá eru uppi hugmyndir um að skipuleggja nýtt móttökusvæði fyrir sorp (gámasvæði) á horni Unubakka og Selvogsbrautar í Þorlákshöfn.
Samkvæmt upplýsingum Hafnarfrétta er gert ráð fyrir því að nýja svæðið verði í líkingu við gámasvæðin á höfuðborgarsvæðinu þar sem horft er til þess að svæðið falli vel inn í umhverfið og sé snyrtilegt. Með nýju staðsetningunni er einnig stefnt að því að auka þjónustu við íbúa.
Í kjölfar greinar Hafnarfrétta varð mikil umræða um málið í bæjarfélaginu. Við ákváðum því að gera óformlega viðhorfskönnun til að kanna afstöðu íbúa til þessarar staðsetningar.
Ert þú sammála eða ósammála því að gámasvæðið verði skipulagt á horni Unubakka og Selvogsbrautar?
- Ég er ósammála því að skipuleggja slíkt svæði á þessum stað (88%, 270 atkvæði)
- Ég er sammála því að skipuleggja slíkt svæði á þessum stað (9%, 29 atkvæði)
- Hef ekki skoðun á því (3%, 8 atkvæði)
Fjöldi atkvæða: 307
Loading ...