Skólalúðrasveitin með JÓLABINGÓ!

grunnskólinn2Skólalúðrasveitin okkar hér í Þorlákshöfn stefnir á æfinga- og tónleikaferð til útlanda næsta sumar. Í fjáröflunarskyni halda krakkarnir (og foreldrar þeirra) bingó í sal grunnskólans miðvikudagskvöldið 16. desember nk. kl.19:30.

Fjöldi frábærra vinninga: Konfekt og kjötveisla, humar og harðfiskur, sælgæti og sundkort, ræktarkort og rósaskreyting, fjölskylduspil og fegrunarmeðferð, ýsa og alls konar!

Verð á spjöldum er eftirfarandi:
1 spjald kr. 500
2 spjöld kr. 800
4 spjöld kr. 1500

Spjöldin verða svo á niðursettu verði eftir hlé.