Þór vann sigur á Haukum í 8-liða úrslitum bikarkeppni karla þegar liðin mættust í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld 79-74.
Leikurinn var jafn og spennandi en Þórsarar voru yfirleitt skrefi á undan Hafnfirðingum.
Með sigrinum er Þór komið í undanúrslit bikarkeppninnar og mætir þar annaðhvort KR, Grindavík eða sigurvegara viðureignar Keflavíkur og Njarðvík B.