Gyða Dögg íþróttamaður Ölfuss 2015

Íþróttamaður Ölfuss 2015 (15)Akstursíþróttamaðurinn Gyða Dögg Heiðarsdóttir var valin íþróttamaður Ölfuss árið 2015 við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Ölfuss fyrr í dag en þetta var í 17. sinn sem valið fer fram.

Gyða var fyrir nokkru valin mótorhjóla- og snjósleðakona Íslands árið 2015 af MSÍ og hlaut viðurkenningu frá ÍSÍ fyrir frábæran árangur á árinu. Stóð hún sig frábærlega á síðasta ári í sinni íþrótt. Ekki nóg með að hún varð Íslandsmeistari í motocrossi kvenna heldur sigraði hún allar keppnir í mótaröðinni með nokkrum yfirburðum. Gyða er 16 ára gömul og hefur hún æft stíft undanfarin ár og á framtíðina fyrir sér í íslensku motocrossi.

Tólf íþróttamenn voru tilnefndir í kjörinu um íþróttamann ársins þetta árið og hér að neðan má sjá alla þá sem tilnefndir voru. Einnig voru viðurkenningar veittar til þeirra sem unnið hafa bikar- eða Íslandsmeistaratitil á árinu og/eða hafa keppt með landsliði Íslands í sinni grein.

  • Ingvar Jónsson kylfingur ársins
  • Arna Björk Auðunsdóttir fimleikakona ársins
  • Þorkell Þráinsson knattspyrnumaður ársins
  • Monika Sjöfn Pálsdóttir hestaíþróttakona ársins
  • Atli Freyr Maríönnuson hestaíþróttamaður ársins
  • Grétar Ingi Erlendsson körfuknattleiksmaður ársins
  • Styrmir Dan Steinunnarson frjálsíþróttamaður ársins
  • Berglind Dan Róbertsdóttir badmintonkona ársins
  • Gyða Dögg Hreiðarsdóttir akstursíþróttakona ársins
  • Guðmundur Karl Guðmundsson knattspyrnumaður ársins
  • Aðalbjörg Ýr Sigurbergsdóttir fimleikakona ársins
  • Eva Lind Elíasdóttir fyrir knattspyrnu- og frjálsíþróttakona ársins

Við óskum öllum þeim sem hlutu viðurkenningu og tilnefningar innilega til hamingju með frábæran árangur á síðasta ári.