Búið er að draga í 8-liða úrslitum Útsvarsins og mun lið Ölfuss mæta nágrönnunum í Árborg.
Þau Ágústa Ragnarsdóttir, Hannes Stefánsson og Árný Leifsdóttir keppa fyrir hönd Ölfusinga en nú þegar hefur liðið sigrað Hveragerðisbæ og Kópavogsbæ.
Í 8 liða úrslitum mætast
- Hafnarfjörður og Reykjavík
- Árborg og Ölfus
- Fljótsdalshérað og Snæfellsbær
- Norðurþing og Fjarðabyggð