Hreyfivikan fer fram um gjörvalla Evrópu dagana 23. til 29. maí nk. Hreyfivikan eða ”MOVE WEEK” er hluti af “The NowWeMove 2012-2020 ” herferð International Sport and Culture Association (ISCA) sem hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum til heilsubótar.
Framtíðarsýn herferðarinnar er “að 100 milljónir fleiri Evrópubúa verði orðnir virkir í hreyfingu og íþróttum fyrir árið 2020” ”að fólk finni sína hreyfingu sem hentar því”. Hreyfivikan er almenningsíþrótta verkefni á vegum Ungmennafélag Íslands í samstarfi við yfir 200 grasrótarsamtök í Evrópu sem öllu eru aðilar að International Sport and Culture Association (ISCA).
Sambandsaðilar UMFÍ munu taka virkan þátt í Hreyfivikunni ”MOVE WEEK” í haust og bjóða upp á fjölda viðburða og tækifæra fyrir fólk til að kynna sér fjölbreytta hreyfingu sér til heilsubótar. Fylgist með á www.umfi.is.
Við hvetjum alla sem taka þátt í vikunni að merkja myndir á samfélagsmiðlum undir myllumerkjunum #minhreyfing og #umfi.
Dagskrá í Þorlákshöfn
Mánudagur 23. maí
Göngum eða hjólum í vinnuna eða skólann, munum að hafa hjálm.
06:00 – Spinning í ræktinni hjá Sóley.
17:30 – Skokkhópur, lagt af stað frá Íþróttamiðstöðinni.
18:00 – Hardcore – æfing í ræktinni hjá Baldri og Steinari.
19:00 – Fuglaskoðunarferð – friðland við Eyrarbakka í boði
Ferðamálafélags Ölfuss. Lagt af stað frá Meitlinum.
Þriðjudagur 24. maí
Göngum eða hjólum í vinnuna eða skólann, munum að hafa hjálm.
16:15 – Jóga hjá Sóley í Jógahorninu. (við hliðina á Olís)
17:00 – Hardcore æfing í ræktinni hjá Baldri og Steinari.
19:00 – Fimleikaæfing fyrir fullorðinna í boði fimleikadeildar Umf. Þórs.
Miðvikudagur 25. maí
Göngum eða hjólum í vinnuna eða skólann, munum að hafa hjálm.
06:00 – Spinning í ræktinni hjá Sóley.
17:30 – Skokkhópur, lagt af stað frá Íþróttamiðstöðinni.
Frítt í brautir Vélhjóladeildar Umf. Þórs.
Félagsmenn verða á svæðinu frá kl. 18:00 til 21:00 til að gefa þeim sem vilja leiðbeiningar og góð ráð.
Fimmtudagur 26. maí
Göngum eða hjólum í vinnuna eða skólann, munum að hafa hjálm.
16:15 – Jóga hjá Sóley í Jógahorninu. (við hliðina á Olís)
17:00 – Hardcore æfing í ræktinni hjá Baldri og Steinari.
Föstudagur 27. maí
Göngum eða hjólum í vinnuna eða skólann, munum að hafa hjálm.
06:00 – Spinning í ræktinni hjá Sóley.
12:00 – Jóga hjá Sóley í Jógahorninu. (við hliðina á Olís)
Frítt í sund í tilefni af hreyfivikunni
Laugardagur 28. maí
10:00 – Spinning í ræktinni hjá Sóley.
11:00 – Lyftingar og vaxtamótun í ræktinni hjá Sibbu og Edda.
Sunnudagur 29. maí
12:00 – Badmintondeild Umf. Þórs býður öllum í badminton.
Frítt í ræktina í tilefni af hreyfivikunni.