Jón Guðni Fjóluson var valinn besti leikmaður Svíþjóðarmeistara Norrköping það sem af er leiktíðar í samantekt dagblaðsins Norrköpings Tidningar.
Okkar maður er efstur í einkunnagjöf blaðsins fyrir fyrstu tólf umferðir deildarinnar.
Jón Guðni var valinn maður leiksins í lokaleiknum fyrir sumarfrí sem fram fór í gær þegar Norrköping og Elfsborg gerðu 0-0 jafntefli.
Norrköping situr í 2. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum á eftir Malmö.