Þorlákshafnarbúinn Lára Dawn Michelsen er dúx Menntaskólans í Kópavogi en brautskráning skólans fór fram síðastliðinn föstudag.
Lára hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur og dugnað í námi ásamt sérstökum viðurkenningum fyrir íslensku, frönsku, ensku og spænsku.
Frábær árangur hjá Láru og óskum við henni til hamingju með árangurinn!