Upplestur skálda og bókauppboð

bokauppbod1Bókamarkaður Bókabæjanna austanfjalls hefur staðið með miklum blóma í Leikhúsinu í Hveragerði um helgar í sumar og markaðnum lýkur með glæsibrag nú um helgina. Höfuðþema síðustu helgarinnar verður „Núlifandi skáld á Suðurlandi“.

Verða bækur skáldanna áberandi síðustu markaðsdagana og efnt verður til ljóðadagskrár í Leikhúsinu laugardaginn 15. ágúst klukkan 15-16 með skáldum af svæðinu. Á sunnudeginum verður svo eldfjörugt bókauppboð klukkan 14 sem Ölfusingar stýra af röggsemi. Þar verða boðnir upp merkir bókagripir allt frá 18. öld en einnig nýlegar bækur á hóflegu verði.

Eftirtalin tíu skáld taka þátt í dagskránni á laugardag: Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, Kristian Guttesen, Kristján Runólfsson, Norma E. Samúelsdóttir,       Pétur Önundur Andrésson, Sigríður Jónsdóttir, SJÓN, Steinunn P. Hafstað, Þorsteinn Antonsson, Þór Stefánsson og Þórður Helgason.

bokauppbod2Á uppboðinu verða meðal annars boðnar upp eftirsóttar og fágætar bækur eins og Saga Hraunshverfis, Einræður Steinólfs, Lúsa-Sólveig og einstök myndabók um Ólympíuleika Hitlers. En einnig algengari gripir á frábæru verði svo sem Þúsund ára sveitaþorp, Að breyta fjalli, Snaran eftir Jakobínu, Mullersæfingar og árituð ævisaga Ingólfs á Hellu og fleira og fleira. Þá eru ótaldir hinir dýru kjörgripir uppboðsins þar sem hæst ber tvö erlend átjándu aldar rit, annarsvegar Ferðabók Eggerts og Bjarna á þýsku í samtíma forlagsbandi og fágætt sagnfræðiverk um dönsku Jómfrúreyjarnar. Listi með uppboðsgripum er birtur hér að neðan.

Markaðurinn er opinn frá föstudegi til sunnudags klukkan 12 til 18. Dagskrá laugardags hefst kl. 15 og sunnudags kl. 14.

Ráðgert er að eftirfarandi bækur verði boðnar upp. Birt með fyrirvara þar sem möguleiki er á breytingum og viðbótum.

Nr Titill Lægsta boð
1 Vængjatök – hugverk sunnlenskra kvenna, matsverð 1500. Lægsta boð 650 650
2 Lífsbók Laufeyjar eftir Ragnheiði Davíðsdóttur, saga sem gerist að hluta til í Hveragerði, matsverð 2100. Lægsta boð 700 700
3 Snaran eftir Jakobínu Sigurðardóttur, matsverð 2200. Lægsta boð 900 900
4 Rósumál Rósu Ingólfsdóttur eftir Jónínu Leósdóttur, áritað eintak, matsverð 2000, lægsta boð 1000 1000
5 Gangstéttir í rigningu eftir Jón Óskar – í plastinu. Óborganlegar lýsingar á skáldum 20. aldar. Matsverð 2700. Lægsta boð 1100 1100
6 Treg í taumi, fræg saga eftir Ásu Sólveigu, áritað eintak, matsverð 1900, lægsta boð 1100 1100
7 Spádóma- og spásagnalist, fjölfræðibók, matsverð 2900, lægsta boð 1300 1300
8 Virkisvetur eftir Björn Th, matsverð 2700, lægsta boð 1400 1400
9 Eyfirðingabók séra Benjamíns Kristjánssonar I-II. Matsverð 2900. Lægsta boð 1700 1700
10 Hersveit hinna fordæmdu eftir Sven Hazel, óborganlegur samsetningur. Matsverð 2200. Lægsta boð 1700 1700
11 Lúsa Sólveig, þáttur í smáriti fimmmenninga á Akureyri 1947, matsverð 2200, lægsta boð 1700 1700
12 Réttarhöldin eftir Franz Kafka. Matsverð 3600. Lægsta boð 1800 1800
13 The greek myths I-II, grísk goðafræði á ensku í tveimur fallegum bindum, matsverð 3600, lægsta boð 1800 1800
14 Íslenskt vættatal eftir Árna Björnsson, matsverð 2700, lægsta verð 1900 1900
15 Bragfræði og háttatal Sveinbjarnar Beinteinssonar frá 1953, matsverð 3600, lægsta boð 1900 1900
16 Frjálst verkafólk eftir Guðbrand Jónsson, tvö hefti frá 1932. Matsverð 3300, lægsta boð 1900 1900
17 Mullersæfingar, útg. 1925. Matsverð 2400. Lægsta boð 1900 1900
18 Ferðasaga Árna Magnússonar frá Geitastekk, matsverð 2600. Lægsta boð 1900 1900
19 Bókin um náttúrulækningar. Matsverð 2400. Lægsta boð 1900 1900
20 Að breyta fjalli eftir Stefán Jónsson, sem ný. Matsverð 2900, lægsta boð 1900 1900
21 Höllusögur Jóns Trausta, Halla og Halla og heiðarbýlið I-IV, allt verkið í þremur bindum, matsverð 3600. Lægsta boð 2100 2100
22 Þúsund ára sveitaþorp eftir Árna Óla. Matsverð 3300. Lægsta boð  2200 2200
23 Ævisaga Jóns Steingrímssonar eldklerks, ein elsta sjálfsævisaga Íslendings. Helgafellsútgáfan frá 1973. Matsverð 4900. Lægsta boð 2300 2300
24 Prófílar og pamfílar eftir Örlyg Sigurðsson, I-IV. Matsverð 5900. Lægsta boð 2300 2300
25 Kristín Lafransdóttir I-III eftir Sigrid Unset nóbelsverðlaunahafa, matsverð 4900. Lægsta boð 2400 2400
26 Úrvalsrit Marx og Engels I-II. Matsverð aðeins 6600 og lægsta boð 2600. Lifi byltingin! 2600
27 Muggur eftir Björn Th. Einstök bók um einn okkar fremsta listamann. Matsverð 4900. Lægsta boð 2900 2900
28 Rit Ólafíu Jóhannsdóttur kristniboða með inngangi eftir Bjarna Benediktsson, matsverð 4700. Lægsta boð 3000 3000
29 Sögn og saga eftir Oscar Clausen I-III, matsverð 5700, lægsta boð 3100 3100
30 Vesturfarabálkur Jóhannesar úr Kötlum I-III, nafn bókanna er Dauðsmannsey, Siglingin  mikla og Frelsisálfan. Matsverð 6900. Lægsta boð 3200 3200
31 Ritsafn Torfhildar Hólm I-III, matsverð 5900, lægsta boð 3300 3300
32 Úr farvegi fyrri alda I-II, eftir Jón Gíslason frá Stóru Reykjum, matsverð 4700, lægsta boð 3300 3300
33 Byltingin 1909 eftir Helga Briem. Rautt skinnband. Fallegt eintak. Matsverð 5500, lægsta boð 3300 3300
34 Tarzanheftin frá 1923-1925 öll innbundin í leður. Sjö hefti, Villti Tarzan, sonur Tarzans, Skógarsögur Tarzans og allar hinar óborganlegu Tarzansögurnar. Matsverð 7900. Lægsta boð 3900 3900
35 Herra Jón Arason eftir Guðbrand Jónsson, matsverð 5300, lægsta boð 3900 3900
36 Ingólfur á Hellu, tveggja binda ævisaga þessa mikla skörungs. Áritað eintak. Matsverð 12.600. Lægsta boð 4400 4400
37 Hestur í lífi þjóðar, stórmerkar hestamyndir frá aldamótunum 1900, matsverð 6800, lægsta boð 4400 4400
38 Fimmdægra, fornindversk æfintýri, matsverð 8.300, lægsta boð 4400 4400
39 Ljósmyndin, kvikmyndasaga eftir Skugga, matsverð 7900, lægsta boð 4400 4400
40 Grimmsævintýri I-IV, vel með farin hefti. Matsverð 7300, lægsta boð 4400 4400
41 Tyrkjaránið á Íslandi, innbundið í rexín, gott eintak, matsverð 6300, lægsta boð 4400 4400
42 Saga Þorlákshafnar I-III. Matsverð 7300. Lægsta boð 4400 4400
43 Dægradvöl Benedikts Gröndal, skinnband, frumútgáfa, matsverð 8300. Lægsta boð 4700 4700
44 Ysjur austræna eftir Gísla á Læk. Sagnaþættir mjólkurbílstjóra á Suðurlandi, tvö bindi. Matsverð 8300. Lægsta boð 4800 4800
45 Landið og landnáma I-II eftir dr. Harald Matthíasson. Stórvirki eftir vandaðan fræðimann, matsverð 8900, lægsta boð 4900 4900
46 Kvæðasafn Einars Benediktssonar gefið út á aldarafmæli skáldsins, matsverð 7300, lægsta boð 4900 4900
47 Ævisaga Tryggva Emilssonar í þremur bindum, með fylgir skáldsaga höfundar, Kona sjómannsins, Matsverð 7900. Lægsta boð 4900 4900
48 Undir kalstjörnu og aðrar sjálfsævisögubækur Sigurðar A. Magnússonar, I-V. Matsverð 7900. Lægsta boð 4900 4900
49 Íslandsmyndir Mayers frá 1836, matsverð 9000, lægsta boð 4900 4900
50 Byggðasaga Austur-Skaftafellssýslu. Afar vel með farið eintak. Matsverð 13000. Lægsta boð 6100. 6100
51 Saga Hraunshverfis á Eyrarbakka, skinnband, gott eintak. Matsverð 12000. Lægsta boð 7200 7200
52 Einræður Steinólfs í Fagradal, einstök bók, matsverð 9900, lægsta boð 7300 7300
53 Flateyjarbók I-IV í fallegu bandi, matsverð 19700. Lægsta boð 7900 7900
54 Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Matsverð 17000. Lægsta boð 9000 9000
55 Gríma I-XXV, skinnband, matsverð 19000, lægsta boð 9000 9000
56 Saga Eyrarbakka eftir Vigfús í Engey, skinnband, matsverð 16500, lægsta boð 9900 9900
57 Thorvaldsen, hans liv og værker frá 1893. Matsverð 15700. Lægsta boð 9900 9900
58 Ritsafn Theodóru Thoroddsen, matsverð 14900, lægsta boð 9900 9900
59 Íslenskar þjóðsögur og ævintýri Jóns Árnasonar I-VI, fallegt eintak, matsverð 24000. Lægsta boð 15000 15000
60 Landfræðisaga Íslands eftir Þorvald Thoroddsen, I-IV. Samtíma skinnband. Afar fallegt eintak. Matsverð 60000,- Lægsta boð aðeins 17500. 17500
61 Hinir XI. Olympisku leikar í Berlín 1936. Afar fágæt myndabók, allar myndir með. Matsverð 26000. Lægsta boð 18000 18000
62 Efterretninger om öen Sanct Thomas og dens Gouverneurer, stórmerkilegt og afar fágætt rit frá 1791 um sögu dönsku Jómfrúareyjanna sem nú tilheyra Bandaríkjunum. Matsverð 237000. Lægsta boð 188000 188000
63 Reise durch Island eftir Eggert og Bjarna á þýsku, útgefin 1774. Afar fágætur gripur og hér í upprunalegu forlagsbandi fra 18. öld. Matsverð 600000. Lægsta boð 290 þúsund 290000