Ægir fær KF í heimsókn í botnbaráttu slag

aegir2016_01Klukkan 18 í dag, þriðjudag, fá Ægismenn lið KF í heimsókn á Þorlákshafnarvöll í 2. deildinni í fótbolta.

Ægismenn sitja í næst neðsta sæti deildarinnar með 2 stig en KF í því síðasta með 1 stig.

Leikurinn er því mjög mikilvægur fyrir bæði lið í fallbaráttunni í deildinni en það lið sem tapar í dag mun sitja í neðsta sætinu.

Nú er um gera fyrir Þorlákshafnarbúa að drífa sig á völlinn og styðja strákana til sigurs.