Bubblubolti, Frikki Dór, brekkusöngur og Lúðrasveitt partý

hafnardagar01Hafnardagar eru komnir á fullt og verður nóg um að vera í dag, föstudag.

Setning Hafnardaga verður í skrúðgarðinum kl. 21 eftir skrúðgönguna sem fer úr hverfunum kl. 20:30.

Dagskrá dagsins má sjá hér að neðan.

  • 17:30-19:00 – Ungmennaráð býður upp á Bubblubolta á fótboltavellunum við frjálsíþróttavöllinn.
  • 20:30 – Skrúðganga úr hverfum sem endar í skrúðgarðinum. Lúðrasveit Þorlákshafnar fer fyrir göngunni. Sjá nánar á Facebook og heimasíðu Hafnardaga.
  • 21:00-23:00 – Dagskrá í skrúðgarði: Setning Hafnardaga,verðlaun fyrir fallegustu og frumlegustu skreytinguna, menningarverðlaun Ölfuss, Lúðrasveit Þorlákshafnar, Friðrik Dór, varðeldur og brekkusöngur með Jarli Sigurgeirssyni. Kiwanismenn bjóða upp á humarsúpu. Dagskránni lýkur með flugeldasýningu.
  • 23:30 – Lúðrasveitt partý í Versölum, ráðhúsi Þorlákshafnar. Jarl Sigurgeirsson syngur og spilar fyrir gesti og þeir fyrir hann og með honum. Aðgangseyrir. 1.500 kr.
  • Opið á Svarta sauðnum langt fram á nótt!