Knattspyrnufélagið Ægir fær 5.531.000 krónur frá KSÍ vegna tekna sambandsins af þátttöku Íslands á EM í Frakklandi í sumar.
Samtals mun KSÍ greiða aðildarfélögum sínum 453 milljónir króna vegna evrópumótsins en það eru 25% af heildartekjum sambandsins af mótinu.
Fjármunum á að verja í knattspyrnutengd verkefni félaganna.