Badmintonæfingar að hefjast eftir sumarfrí

badminton01Badmintonæfingarnar munu hefjast aftur eftir sumarfrí mánudaginn 5. september. Badminton er íþróttagrein sem hentar öllum, er auðvelt að læra og veitir góða alhliða hreyfingu. Í vetur munum við vera með hefðbundnar æfingar fyrir börn og unglinga tvisvar sinnum í viku sem og að bjóða upp á trimmara æfingar tvisvar sinnum í viku þar sem fólk á öllum aldri getur mætt og haft gaman.

Trimmara æfingarnar eru án þjálfara en hægt er að fá leiðbeiningar og smá kennslu. Nú er um að gera að taka spaðann af hillunni og rifja upp gamla takta eða jafnvel að læra nýja fyrir þá sem ekki hafa spilað áður. Æfingarnar verða sem hér segir:

  • Mánudaga frá kl. 17:45-19:00
  • Fimmtudaga frá kl. 17:45-19:00 og trimmarar frá kl. 20:30-22:00
  • Sunnudaga trimmarar frá kl. 13:00-14:30

Æfingagjöldin fram að jólum eru 10.000 kr fyrir börn og unglinga, fullt gjald fyrir trimmara er 15.000 kr og hálft gjald 10.000 kr. Skráning fer fram á æfingartímum. Ekki er þörf á að eiga badmintonspaða til að æfa því félagið á spaða sem hægt er að fá afnot af. Þjálfari er Karen Ýr Sæmundsdóttir s.865-1309 og aðstoðarþjálfari er Axel Örn Sæmundsson s.821-4872.

Með von um að sjá sem flesta
Stjórn Badmintondeildar UMF Þórs