Bílvelta á Þorlákshafnarvegi

logregla01Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning klukkan 1:45 aðfaranótt sunndags um bílveltu á Þorlákshafnarvegi á milli Hveragerðis og Þrengslavegar. Frá þessu er greint í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.

Þar hafði ökumaður, sem var einn á ferð, misst stjórn á bifreiðinni sem valt eina 30 metra út fyrir veg. Maðurinn slapp með skrámur en bifreiðin er gjörónýt.

Ökumaðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis við aksturinn.

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir