Nýjar Ölfusréttir vígðar – myndir

olfusrett_vigsla05Nýjar Ölfusréttir voru vígðar síðastliðinn sunnudag, 18. september, í mynni Reykjadals í Ölfusi.

Gunnsteinn R. Ómarsson bæjarstjóri Ölfuss, Sveinn Steinarsson forseti bæjarstjórnar og Halldór Guðmundsson sauðfjárbóndi í Hvammi í Ölfusi héldu ræðu við vígsluathöfnina.

Veðrið lék við smalafólk og smalamennskan gekk vel fyrir sig. Réttirnar vöktu mikla athygli og kátínu hjá erlendum ferðamönnum sem áttu leið hjá í Reykjadal og margir hverjir stöldruðu við og fylgdust með.

Myndir tóku Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir og Sveinn Steinarsson.