Tvöfaldur slagur Ölfuss og Hafnarfjarðar á föstudaginn

utsvar-thorÖlfus keppir við Hafnarfjörð í Útsvari næstkomandi föstudag, 21. október kl. 20:00 á Rúv. Lið Ölfuss er það sama og í fyrra þ.e. Ágústa Ragnarsdóttir, Árný Leifsdóttir og Hannes Stefánsson. Þau stóðu sig með prýði í fyrra og komust í átta liða úrslit sem tryggði okkur örugga þátttöku í Útsvarinu í ár.

Það er von á skemmtilegri keppni og við hvetjum sem flesta að mæta í sjónvarpssal til að styðja okkar fólk áfram. Það er mæting kl. 19:30 í sjónvarpshús Rúv í Efstaleiti 1, 150 Reykjavík.

Sama kvöld mætir Þór Þorlákshöfn Haukum á Ásvöllum í Dominos deild karla og hefst leikurinn kl 19:15.

Það er því hægt að segja með sönnu að það verður hörkuslagur á milli Ölfuss og Hafnarfjarðar á næsta föstudag!

-kós