Mánudaginn 24. október nk. ætla konur á Íslandi að leggja niður vinnu kl. 14:38. Meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðalatvinnutekjum karla.
Konur eru því með 29,7% lægri tekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir sínum launum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38.
Konur í Ölfusi ætla að safnast saman á Ráðhústorginu í Þorlákshöfn kl. 14:50 og ganga síðan saman létta göngu um bæinn með viðkomu í Skrúðgarðinum – sem er fallegur minnisvarði um verk kvenna í þorpinu. Göngunni lýkur svo á Meitlinum/Café Sól þar sem þær sem vilja geta fengið sér hressingu
Með þessum hætti minnumst við Kvennafrídagsins 24. okt. 1975. Einnig mótmælum við harðlega kynbundnum launamun kynjanna á Íslandi og köllum eftir því að leiðrétting hans verði fyrsta verkefni nýrrar ríkisstjórnar.