Miðvikudaginn 16. nóvember næstkomandi verður formleg opnun nýrrar aðstöðu Tónlistarskóla Árnesinga í Þorlákshöfn í grunnskólanum.
Húsið verður opið frá kl. 17:30 – 19:30 og boðið verður upp á ýmis tónlistaratriði nemanda úr skólanum ásamt léttum veitingum.
Allir velkomnir!
Tónlistarskóli Árnesinga var stofnaður árið 1955 og hefur deild hans í Þorlákshöfn verið einn kennslustaða frá upphafi. Í byrjun var kennt á ýmsum stöðum í bænum, t.d. í kirkjunni, Kiwanishúsinu og í þó nokkur ár voru aðalstöðvarnar í einbýlishúsi í Lýsubergi.
Árið 1996 fékk skólinn loks nokkur herbergi í grunnskólanum til notkunar og varð samband tónlistarskólans og grunnskólans miklu sterkara við það. Tónlist hafði alltaf verið mikilvægur þáttur í lífi í Þorlákshafnarbúa, en varð nú hluti af náminu í skólanum, m.a. vegna þessa að nemendur fengu að fara í tónlistartíma á skólatíma. Það var óvenjulegt á þeim tíma nema í sveitaskólum þar sem nemendur mættu í skólabílum í skólann.
Kennslustofurnar í grunnskólanum nýttust mjög vel til tónlistarkennslu í allmörg ár. Síðustu 15 árin hefur tónlistarkennsla hins vegar breyst mikið, sérstaklega þegar ný aðalnámskrá fyrir tónlistarskóla var tekin í notkun árið 2000. Námskráin leggur mun meiri áherslu á hópkennslu í formi samspils, hljómsveitarstarfs og tónfræðanáms, sem tónlistarkennurum finnst vera mjög mikilvægur þáttur í góðri tónlistarmenntun. Af þessu leiddi að þörf varð fyrir stærri kennslurými.
Tónlistarkennarar í Þorlákshöfn eru einstaklega ánægðir með nýju kennsluálmuna sem nú hefur verið tekin í notkun. Gefur húsnæðið þeim miklu meiri möguleika á breyttum kennsluháttum en áður var.
Tónlistarskóli Árnesinga þakkar Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir allan þann stuðning, sem það hefur veitt tónlist í bænum í gegnum árin og sérstaklega fyrir þessa miklu breytingu á húsnæði skólans, sem tekið er í notkun núna.