Norðurvararbryggja sprengd með 100 kílóum af dínamíti

Mynd: Róbert Karl Ingimundarson

Síðastliðinn fimmtudag, 26. janúar, var ysta karið á Norðurvararbryggju í Þorlákshöfn sprengt. Notast var við 100 kg af dínamíti og fannst sprengingin vel í þorpinu.

Þetta er liður í umbótum á höfninni sem eru í gangi en verið er að dýpka höfnina og fjarlægja Norðurvararbryggju, oft nefnt L-ið. Þessar umbætur munu gera stærri skipum og ferjum kleift að sigla inn í höfnina og snúa innan hennar en snúningsradíusinn verður um 230 m eftir að Norðurvararbryggja er fjarlægð.

Eins og mörgum er kunnugt mun Smyril Line Cargo hefja vikulegar siglingar milli Þorlákshafnar og Rotterdam í vor og það skip er tæplega 140 m langt og 20 m breitt.