Magnea hlaut Umhverfisverðlaun Ölfuss 2017

Magnea Magnúsdóttir, umhverfis- og landgræðslustjóri Orku Náttúrunnar hlaut Um­hverf­is­verðlaun Ölfuss 2017 fyr­ir brautryðjenda­verk­efni við upp­græðslu á Hell­is­heiði.

Verðlaunin voru afhent í gær, sumardaginn fyrsta, við hátíðlega athöfn í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, var viðstaddur athöfnina og afhenti Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, Magneu verðlaunin.

„Samkvæmt upplýsingum frá Orku Náttúrunnar felur verk­efni Magneu í sér að nýtt­ur er staðar­gróður til að græða upp svæði sem var raskað við virkj­un­ar­fram­kvæmd­ir á Hell­is­heiði eða önn­ur um­svif fyrr á tíð. Ávinn­ing­ur­inn er sá að ásýnd svæðanna verður svipuð því og áður en raskið varð og til þess nýt­ir Magnea gjarna mosa eða ann­ar móa­gróður, sem set­ur mark sitt á um­hverfið,“ segir á heimasíðu Ölfuss.

Dagný Magnúsdóttir listakona úr Þorlákshöfn og eigandi Hendur í Höfn hannaði verðlaunagripinn. „Hugmyndafræði Magneu í landgræðslu var innblástur Dagnýjar að gripnum.“