Vorhreinsun í Þorlákshöfn

Mynd: Baldvin Agnar Hrafnsson

Íbúar athugið!

Nú er komið að árvissri hreinsun gatna og göngustíga í Þorlákshöfn. Það flýtir mjög fyrir og skilar betri þrifum þegar bifreiðar, hjólhýsi, tjaldvagnar, kerrur o.fl. eru færðir úr götunni og er ekki lagt á ný fyrr en hreinsun er að fullu lokið. Þetta gildir eingöngu um almenn stæði í götunni og í bænum en ekki stæði innan lóðarmarka íbúðarhúsa og fyrirtækja.

Unnið verður miðvikudaginn 26. apríl, fimmtudaginn 27. apríl og föstudaginn 28. apríl nk.

Sveitarfélagið Ölfus