Jónas um allt land í sumar og alla sunnudaga á Rósenberg

Jónas Sigurðsson ásamt Ritvélum framtíðarinnar og góðum vinum munu flytja sunnudagshugvekju á Rósenberg í miðborg Reykjavíkur í allt sumar og verða fyrstu tónleikarnir núna á sunnudaginn, 11. júní.

Um er að ræða einstaka tilrauna tónleikaröð þar sem Jónas kemur fram á öllum sunnudagskvöldum í sumar og út ágústmánuð ásamt hljómsveit sinni, en saman eru þau annáluð fyrir lifandi tónlistarflutning.

Fimm ár frá tónleikamaraþoni á Borgarfirði eystri
Jónas gerði álíka tilraun fyrir fimm árum síðan þegar hann hélt tónleika á hverju kvöldi í 18 daga í félagsheimilinu á Borgarfirði eystri. Sú tilraun gekk vonum framar og var svo gott sem fullt hús á hverju kvöldi þrátt fyrir að íbúafjöldi þar í bæ sé ekki nema rúmlega 100 manns. Það verður því spennandi að sjá hvernig mál þróast í höfuðborginni, en í þetta sinn verður Jónas með hljómsveit sína með sér á sviði.

Rósenberg hefur fengið andlitslyftingu og státar nú meðal annars nýjum glæsilegum matseðli og hægt er að panta borð og næra sig áður en tónleikar hefjast. Allir tónleikar hefjast kl. 21.30 og miðasala fer fram á Tix.is og er miðaverð er 3.500 kr.

Ellefu tónleikar á ellefu dögum um allt land 
Í fyrra fóru Jónas og Ritvélar framtíðarinnar á tónleikaferð þar sem þau héldu átta tónleika á sjö dögum hringinn í kringum landið og í ár verður einnig lagt af stað í hringferð.

Í ár verður hringferðin lengri og tónleikarnir fleiri, eða samtals ellefu talsins. Hún hefst með útitónleikum í Mosskógi í Mosfellssveit þann 22. júní og svo er förinni heitið á eftirfarandi staði:

Fim 22. Júní – Útitónleikar í Mosskógum í Mosfellssveit
Fös 23. Júní – Gunnarshólmi í Austur Landeyjum
Lau 24. Júní – Drangey Music Festival
Sunn 25. júní – Sunnudagshugvekja á Rosenberg Reykjavík
Mán 26. Júní – Víkurkirkja á Vík í Mýrdal
Þriðjud. 27. Júní – Bláa kirkjan á Seyðisfirði
Miðvikud. 28. Júní – Fjaran á Húsavík
Fim 29. Júní – Menningarhúsið Berg á Dalvík
Fös 30. Júní – Frystiklefinn á Rifi, Snæfellsnesi
Lau 1. Júlí – Lopapeysan á Akranesi
Sunn 2. júlí – Sunnudagshugvekja á Rosenberg Reykjavík