Tveir Þorlákshafnarbúar sitja í fimm efstu sætunum yfir skattakónga Íslands árið 2016 en þetta kemur fram í frétt Kjarnans um málið.
Einar Friðrik Sigurðsson er í öðru sæti listans og greiddi hann 383,9 milljónir króna í opinber gjöld á síðasta ári. Ármann Einarsson, sonur hans, er síðan í fimmta sæti listans og greiddi hann 159,1 milljón króna í opinber gjöld.
Feðgarnir áttu útgerðarfyrirtækið Auðbjörgu í Þorlákshöfn en fyrirtækið Skinney-Þinganes keypti öll hlutabréf í fyrirtækinu árið 2015.